Guðrún Krulla

tímalausa

18.08.2008 23:04:22 / Gudrun

Á morgun

...ætla ég að vera heima, ef einhver myndi vilja vita það.
Eftir að ég tek próf í líe klukkan 9.

Verknám hefst svo á miðvikudag.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 19:22:09 / Gudrun

Mamma nr. 1,2 og 3.

Stelpan okkar var skírð um helgina þannig að núna þurfum við ekki lengur að passa okkur á því að kjafta ekki óvart nafninu. Hún heitir semsagt Hanna Valdís í höfuðið á Hönnu tengdó og pabba.
En þessa dagana er ég mamma í fullu starfi og gef mér þess vegna ekki tíma í að blogga neitt.
En þegar ég fer í tölvuna þá er það til að setja myndir og annað inn á barnanetssíðuna hennar Hönnu Valdísar.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 11:58:36 / Gudrun

Við erum komin heim ...

Við fengum að fara heim á miðvikudaginn og nú þegar er skvísan búin að fara í eina veislu og á Hauganes:) Hún er að sjálfsögðu allgjör engill enda við Hólmar foreldrarnir.
Við erum svo bara heima flesta daga ef fólk vill koma að kíkja á okkur

Mér skilst að bekkjarsystur mínar ætli að kíkja til mín og skoða skvísuna á miðvikudaginn :) og hlakka ég ekkert smá til.

Svo verður hún skírð á sjómannadaginn sem er 1 júní í Ársskógskirkju, tæplega 70 manna gestalisti þannig að það verður stærðarinnar veisla á eftir:)

jæja nenni ekki meir í bili

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 16:46:02 / Gudrun

Sama staða...

* sama staða á mér...
* aðeins lækkaður blóþrýstingur
* áfram ++prótein í þvagi - sem er gott, ef það hefði verið +++prótein þá hefði ég þurft að leggjast inn.
* skilaði sólarhringsþvagi í brúsa = 0.85 af eggjahvítu í þvagi á að vera 0.15 - veit ekkert hvað það þýðir
* er ennþá innrituð inná deildina
* fékk að fara heim og á að slaka áfram á. Vera róleg og gera ekki neitt
* á að mæta báða dagana um helgina og láta mæla í mér blóþrýstinginn
* á tíma hjá Edward upp á deild á mánudagsmorguninn.

Guðrún

» 17 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 17:08:59 / Gudrun

Kyrrsett .. sjibbí

Fór í mæðraskoðun í morgun og þar kom aftur fram hækkun á prótein í þvagi meira en síðast. Blóðþrýstingur líka eh hækkaður. Ég var send upp á FSA og var þar innskrifuð, er skráð inniliggjandi en fékk að fara heim með því loforði að taka því rólega. Er semsagt heima hjá mér kyrrsett, má ekkert gera. Á að mæta eftir 11 á morgun til að fá niðurstöður úr blóðprufum og slíku og þá kemur í ljós hvort að ég er með meðgöngueitrun eða ekki. Hvort að ég verð innlögð eða ekki og svo framvegis. Ég amk ligg bara heima núna og geri ekki neitt ... sjibbí ....
Slæmu fréttirnar eru að ég er EKKI búin með einstaklingsverkefnið sem ég á að skila á morgun og má ekki vinna við tölvuskjá (er bara að stelast rétt til að láta vita af mér) og af því að ég mætti ekki í skilatímana til Ebbu þá fæ ég auka verkefni TAKK FYRIR sem ég á að skila þegar ég get:evil:

Guði sé lof fyrir harða diskinn hennar Dagnýar sem ég er með annars væri ég dauð.
Guðrún heimaliggjandi!

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 12:19:25 / Gudrun

15 dagar í settan keisara!

Við mættum upp á deild klukkan hálf 9 og þar var tekið staðann á mér = blóðþrýstingur, hiti og hjartsláttur hjá krílinu og samdrættir athugaðir. Ég var sögð hraust kona þannig að ég mætti allveg fara í vendingu.
Svo var reynt að setja upp nál og tókst það í 4 skipti .... og svo var sett upp dreipi til að slaka á leginu. 
Til að gera langa sögu stutta:  
Þrjóskupúkinn neitaði alfarið að gefa sig.
Edward hamaðist og hamaðist á kúlunni minni og potaði og ýtti og ekkert gekk.
 Hann játaði sig sigraðann, sagði að þetta vildi bara sitja greinilega.
Eftir á var svo aftur tékkað á krílinu... það var nú bara hið rólegasta eftir þetta allt þannig að ég var látinn drekka djús og snúa mér aðeins - svo var aðeins potað í það og þá fór það að hreyfa sig:)
Svo var okkur gefið keisaradagur sem er 20 maí, þannig að það eru 15 dagar í settan dag.
Núna sit ég heima með fætur upp í loft og á að gera það í allan dag, ekki allveg minn tebolli. Fékk tilskipun frá Edda, ljósunni og Hólmari að vera róleg.

Þá vitið þið það.


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 22:06:09 / Gudrun

Vending eftir 10 og 1/2 tíma

36v 4d.
Þarna er ég komin 36v. og 4d.
Sífellt stækkandi, á ekki málband til að mæla mig hringinn... redda því vonandi sem fyrst
Stefni á að setja vögguna saman sem fyrst.
Passa ekki lengur í nema 1 brjóstahaldara og svo íþróttatoppinn minn  - SÚPER! Þakka fyrir að hafa ekki verið með rosa brjóst áður, ætla samt að njóta þess á meðan það varir...
Vending í fyrramálið klukkan 8.30
Allir að hugsa góða snúnings-strauma til okkar áfram...
Bara eftir að skila 2 verkefnum - 5 dagar eftir af skólanum :) Sjibbí!
Ætla út að borða með bekknum til að fagna annalokum á föstudaginn og hlakka mikið til.
Lofa að blogga á morgun og láta vita hvernig gekk.. og hvað er á stefnunni.


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 18:02:46 / Gudrun

36 v. + 1d.

Fór í mæðraskoðun í morgunn.
* Þar kom fram að kúlan mín er 36 cm - legbotnshæðin er það og kröftugur og góður hjartsláttur hjá krílinu.
* Ég var látin pissa og stixa þvag eins og alltaf og þar kom fram einhver smá prótein í þvaginu, svo er ég komin með bjúg á lappirnar og blóðþrýstingurinn minn eitthvað örlítið hækkaður. Þetta geta allt verið vísbendingar um meðgöngueitrun en ljósan mín sagði mér bara að taka því eins rólega og aðstæður leyfðu - ekki allveg að virka í miðri prófa og verkefnatörn.
*Hún sagðist allveg getað trúað því að blóþrýstingurinn væri hækkaður vegna þess að ég er búin að vera svo þreytt undanfarið og ég ætti bara að halda áfram að gera allt þetta sem ég er búin að vera að gera til að vinna gegn bjúgnum = sundferðir, aukin vatnsinntaka, borða vatnsmelónur og gúrkur og sofa með hátt undir fótunum. Ef ég fer að fá hausverk (sem er nokkuð sem ég bara þekki ekki) þá á ég að kíkja upp á deild og láta tékka á mér það gæti verið frekari vísbending um meðgöngueitrun.
* Hins vegar kom það líka í ljós eins og ég reyndar vissi að krílið mitt er ennþá sitjandi og því eigum við Hólmar að mæta upp á deild á mánudagsmorguninn í vendingu. Ef það ekki heppnast þá verður jafnvel gripið til þess að ég fari í fyrirframákveðin keisara því að fæðingarlæknarnir hérna eru víst ekkert alltof hrifnir af sitjandi fæðingum.

Svo er ég að fara í próf á morgun í áfanga þar sem áhuginn er minni en núll og er búin að lofa Hólmari að taka því svo bara rólega á morgun. Sem ég ætla að reyna að gera.

kv. Guðrún áhugalausa....

» 12 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 15:00:48 / Gudrun

bissí eins og alltaf

* Rétt að láta vita af mér...
* Var í prófi á þriðjudag - gekk ekki vel.
* Sumardagurinn fyrsti í gær = frí... nýtti hann ekki eins og ég vildi... en naut hans samt sem áður m.a. með því að fá grill ALA Hólmar og fá mömmu mína og pabba í mat.
* Verkefnavinna í dag, gengur miklu betur en ég var búin að gera ráð fyrir, er í svo mögnuðum hóp :D  - skil á því verkefni á mánudag.
* Helgin=læra fyrir lokapróf í ARA sem ég kann EKKERT í  - sem er á miðvikudag.
* Svo ætla ég og Dagný að kíkja á krókinn á laugardagskvöldið þar sem Tekið til kostanna er. Hólmar ætlar hins vegar að fara um daginn með Danda og Írisi og kíkja á einhverjar sýningar sem eru í höllinni.

Hef ekki meiri tíma í bili til að blogga...
Krullan

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 09:12:40 / Gudrun

35 v. = 5 vikur í settan dag = 35 dagar í settan dag

35 v.á hlið.
35v. á hlið.. sífellt stækkandi...

35v. og orðin 110 cm í ummál. 5 vikur eftir

35v. og orðin 110cm í ummál... 5 vikur eftir. Jidúdda.

Myndir 35 v. bæði framan og á hlið í albúminu:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 09:22:54 / Gudrun

6 Yndisleg ár.

Síðastliðinn miðvikudag vorum við Hólmar búin að vera saman í 6 ár, 6 yndisleg ár. Þrátt fyrir mikið annríki hjá mér í skólanum þá fórum við saman í hesthúsin og grilluðum okkur svo heimakryddað lambakjöt í kvöldmat. Kvöldið tókum við svo í afslöppun. Mér finnst ótrúlegt hvað þessi ár eru búin að vera fljót að líða, finnst eins og það sé ekki meira en svona ár síðan að við vorum alltaf að rúnta, fórum í útileguna í Ásbyrgi með Ingu og Felix og bjuggum nánast með annan fótin í Lauftúni. :) Ef ég myndi fara að telja upp allt sem gerst hefur á þessum árum þá yrði þetta of langt blogg:)
En spennandi tímar eru frammundan og fengum við t.d. sendan úberflotta vagninn okkar í gær. Ég gat ekki staðið á mér og setti hann saman og hann er allveg hreint geggjaður. Allveg hreint.


Svo er ég að fara á Botn með Hörpu um helgina með 5 stelpur og er stefnan tekin á að njóta góða veðursins í botn (hehe fram á botni), fara í sund og vera úti. Því verð ég að fara að reka nefið ofaní bækurnar því tíminn flýgur áfram þegar maður hefur svona lítið af honum.
.... úthlutun vettfangsstaða er komin, ég fékk vettfangsnám á Akureyri hjá Pálínu sem vinnur að búsetumálum geðfatlaðra á Akureyri. :) Rosalega spennandi og skemmtilegt án efa. Vettfangsnámið á að byrja 25 ágúst en ég er búin að senda henni emil og byðja hana um að hitta mig svo að ég geti rætt þetta aðeins við hana, langar að byrja jafnvel fyrr, dreifa tímunum á fleiri daga, vinna verkefnin heima og allskonar svona aðlaganir svo að ég geti sinnt bæði barninu mínu og skólanum.
Í dag eru 3 vikur eftir af skólanum FJÚFF of stutt miðað við verkefnin en of langt miðað við geggjaða veðrið úti. Svo eru 5 vikur og 3 dagar í settan dag. Ég er farin að telja niður dagana það er svo stutt í þetta. Næsta mæðraskoðun 29 apríl og þá verður stríðnispúkin vonandi búin að snúa sér í rétta stöðu.

ykkar Krulla.

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 22:09:35 / Gudrun

vika 33 og 34 í myndum.

33v.
Vika 33.

34v.
Vika 34

Var að setja inn í bumbu og sónarmyndir nýjar myndir frá þessum 2 vikum.


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 09:35:58 / Gudrun

verðandi mömmu hugleiðingar....

Um helgina lagðist ég á veraldarvefin og fór að leita mér að barnavagni til að kaupa með góðri aðstoð frá foreldrum mínum. Ég setti inn fyrirspurn á barnaland af því að ekki veit ég hvað snýr upp eða niður í þessar flóru af valkostum (ef þið ýtið á barnaland þá komist þið inná hana). Þar fékk ég ábendindar á vagna eins og Emmaljunga, Brio og Simo.
Ég fór því að skoða mig um og komst að því að mér fannst emmaljunga vera flottasti vagninn.
Varðan selur þessa vagna og er eini söluaðilinn á íslandi og þar kostar hann 94. þúsund staðgreitt en ef þú átt nú ekki svona mikinn pening og þarf að fá þetta á Visa þá er það 99 þúsund!
Fifa selur svo bæði Brio og SImo vagnana. Ég veit ekki hvort að Fifa er eini söluaðilinn en það er eini sem ég fann á neitinu. Þar kostar Brio vagn 64. þúsund ódýrasti og þá með engum aukahlutum eða skemmtilegum möguleikum á frekari notkunn en það er annar Brio vagn til sölu hjá þeim á á 82 þúsund. Simo vagnarnir eru á 82 þúsund.
Ég fékk vægt sjokk þegar ég fór að skoða þetta þar sem ég hafði reiknað með að barnavagn kostaði ekki nema svona 40 kanski 50 þúsund. Er þetta eðlileg verðlagning?
Verðandi mamman sem finnst ofboðslega dýrt að kaupa barnavagn.

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 13:18:04 / Gudrun

Tíminn líður hratt.

33 vikur og 4 dagar í dag sem þýðir að það eru bara 6v. og 3 dagar eftir.Viljiði pæla í því. Jiiii, ég væri nú allveg til í að vera ekki í skóla og svona miklum verkefnum akkurat núna. En ég vil klára á réttum tíma þannig að það er eins gott að halda sig á réttu róli.

Vettfangsstaðirnir voru tilkynntir í dag. Bjarg var þar fremst í flokki og ég að sjálfsögðu vona að það gangi bara eftir að ég fái það. Ég er semsagt að fara í vettfangsnám þann 25 ágúst þannig að Bjarg er besti kosturinn fyrir mig. Stutt heimanað frá mér og stutt f. Hólmar að koma með krílið ef þess þarf.

Ég fór svo í hitting á miðvikudagskvöldið og hitti þar Kristínu M og Ingunni og var það æðislegt, fékk geggjaða ostaköku og grænmeti og dipp. Spjölluðum og slúðruðum, allveg hreint frábært. Takk f. kvöldið stelpur og takk f. veitingarnar Kristín.

Nú þarf ég víst að fara að læra, ætla ekki að kveikja á sjónvarpinu fyrr en ég er búin að læra það sem ég setti mér fyrir í dag, sem er svosum ekki mikið. En ég er svo löt þessa dagana að það hálfa væri hellingur.
knús á ykkur sem nenntuð að lesa þetta ...
Meðan ég man, ég tók 33 vikna bumbumynd á þriðjudaginn hjá Múttu, set hana inn næst þegar ég fer þangað. Myndavélin okkar vill ekki taka neina mynd fyrir mig, held að hún sé allveg búin að gefast upp. Mamma fæ ég vélina þína lánaða fram yfir fæðingu?

Krullan

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15